Andri

Designing the Interweb

Prófkjör Samfylkingarinnar

leave a comment »

Samfylkingarfélagið í Reykjavík stendur fyrir opnu prófkjöri 11. og 12. febrúar næstkomandi þar sem valinn verður listi úr hóp 17 frambjóðenda. Á meðal frambjóðenda er Sigrún E. Smáradóttir vinkona mín. Sigrún hefur verið varaborgarfulltrúi Reykjavíkurlistans undanfarin tvö kjörtímabil auk þess að hafa starfað sem pólitískur aðstoðarmaður Ingibjargar Sólrúnar fyrir síðustu alþinigiskosningar.

Á næsta kjörtímabili leggur Sigrún Elsa áherslu á að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskólavistar, laga grunnskólann enn frekar að breyttum tímum og skapa þar aðstæður sem hvetja til einstaklingsmiðaðs náms. Hún vill stuðla að uppbyggingu Orkuveitu Reykjavíkur til hagsbóta fyrir borgarbúa og auka þar vægi umhverfisvænna áherslna við ákvarðanatöku.

Sigrún Elsa Smáradóttir

Written by Andri

janúar 29, 2006 kl. 11:16 pm

Skrifað í Iceland, Politics

Skildu eftir svar